Þjónusta / Gjaldskrá

Gjaldskrá þessi er endurskoðuð á 6 mánaða fresti og getur breyst án fyrirvara.
Viðskiptavinir sem eru í virkri samtalsmeðferð greiða gjald eftir þeirri gjaldskrá sem gilti þegar samtalsmeðferðin hófst.
Gjald fyrir hvern tíma og eingreiðslur fyrir marga tíma, er innheimt með greiðsluseðli í heimabanka.

Stök viðtöl

Stök viðtöl eru t.d. fyrstu komu meðferðar- og/eða aðstandenda viðtöl. Öll meðferðarvinna, samtalsmeðferð og aðstandenda stuðningur, hefst með stöku viðtali. Þar hefur viðskiptavinur tækifæri til að kynnast ráðgjafa, afla sér upplýsinga um í hverju viðtalsmeðferð felst og við hverju má búast. Ráðgjafi nýtir fyrsta viðtal til að afla upplýsinga um þarfir og væntingar viðskiptavinar og metur hvort samtalsmeðferð, sem í boði er, geti nýst væntanlegum viðskiptavini. Í lok fyrstu komu viðtals er tekin ákvörðun um hvort og þá hvernig, framhald verður á viðtölum. Framhald gæti verið í formi annars staks viðtals eða að viðskiptavinur ákveður að hefja viðtalsmeðferð.
Tímalengd: 45 mínútur
Verð:                                                  8.550,-

Meðferðarviðtöl

Meðferðarviðtöl eru fyrir einstaklinga sem eru að fást við fjölbreyttan vanda. Viðtalsmeðferðin byggir á kjarna 12 spora kerfisins og áfallamiðaðri nálgun. Aðferðin miðar að því að hún nýtist jafnt einstaklingum sem eru að kljást við bakföll í bata frá fíkn og einnig þeim sem ekki eru að kljást við fíkn. Meðferðarviðtal hefst með stuttri slökun. Samtalstími er um 70 mínútur og lýkur með því að ákveðin eru verkefni/æfingar fyrir næsta tíma. Viðtalstíma er svo slitið með stuttri öndunaræfingu og slökun.
Tímalengd: 90 mínútur
Verð:
Stakur tími:                                    17.100,-
5 tímar (eingreiðsla):                    76.950,- (10% afsl.)
10 tímar (eingreiðsla):                145.350,- (15% afsl.)

Viðhalds viðtöl

Viðhalds viðtöli eru ætluð þeim sem hafa verið í samtalsmeðferð og óska eftir að að fá eftirfylgni einu sinni til tvisvar sinnum í mánuði. Í viðhalds tímum er farið yfir stöðu viðskiptavinar, hvernig gengur að nota þau tæki og tól sem hann fékk í viðtalsmeðferðinni og æfingar útlistaðar betur eða þeim breytt ef þörf er á.
Tímalengd: 60 mínútur
Verð:
Stakur tími:                                   11.400,-
5 tímar (eingreiðsla):                   51.300,- (10% afsl.)
10 tímar (eingreiðsla):                 96.900,- (15% afsl.)

Handleiðsla

Handleiðsla er í boði fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnanna sem starfa í umhverfi sem krefst mikilla og/eða krefjandi samskipta við fjölbreyttan hóp samstarfsfólks, viðskiptavina og/eða skjólstæðinga.
Tímalengd: 50 mínútur
Verð:
Stakur tími:                              11.400,-
5 tímar (eingreiðsla):              51.300,- (10% afsl.)
10 tímar (eingreiðsla):           96.900,- (15% afsl.)